Hildur María
24.08.2006 11:24:58 / hildur

skólinn byrjaður

jæja þá er skólinn byrjaður á fullu. Fór á þriðjudaginn og sótti stundatöfluna mína,. Ég þarf bara einu sinni að mæta kl 8 annars bara kl 9:) en er samt oftast til 16!  Í dag var svo svona fyrsti kennsludagurinn því í gær var bara verið að afhenda námsáætlanir og skólinn bara til hálf eitt.  En annars er skólinn bara mjög fínn er farin að rata og allt8) hehehe veit hvar fyrirlestrasalurinn er og læti sko8) haha er samt alltaf í tímum sem ég þekki engan, nema ensku, þá er ég með guðbjörgu úr fótboltanum.  Það eina samt sem mér finnst geðveikt öðruvísi hér í tímum og í MÍ það er að hérna í tímunum þá talar engin, það bara heyrist ekki múkk, þó að kennarinn spurji, þá svarar engin, haha það er soldið öðruvísi en var í tímum hjá mér í fyrra, allir að tala og allt...ég ætti kannski bara að fara taka þetta að mér, að tala, ég er vön síðan í fyrra í skólanum, allavega í stærðfræði...:D

En svo er ég byrjuð á æfingum með keflavík, fór á þriðjudaginn og það var ógeðslegt veður, það lak úr mér þegar ég kom heim. Svo í gær var æfingarleikur mfl kvk á móti 4 fl kk, og fékk ég að spila eigilega allan tímann, fór útaf í svona 3-4 mín. þannig það er bara fínt.

En svo er seinasti leikurinn okkar í BÍ/Bolungarvík á laugardaginn við GRV, í grindavík:)  og þá er sumarið bara búið... eða sumar og ekki sumar, ekkert búið að vera gott veður... pfff

en ég hef ekki frá fleiru að segja, endilega segið mér einhvað sniðugt í komment;) ég kveð úr keflavík city;) hehe

-Hildur-


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 11:30:00 / hildur

jæja þá er komið að því:)

jæja þá er keflavíkin á eftir, ég er að fara! pæliði í því. skólinn byrjar á morgun og er ég ekki frá því að mér kvíður soldið fyrir að fara.. hehe, en þetta reddast:)

En spiluðum á móti Ægir í gær hér heima og sko ég nenni ekki að eyða orðum um  hvernig þær létu, uss, svona hagar maður sér ekki í fótbolta. En við áttum gjörsamlega leikinn, stýrðum honum alveg, allan fyrri hálfleikinn, en boltinn fór ekki inn, 0-0 í hálfleik semsagt.:) en svo í seinni, skoruðu þær og svo hún karítas úr víti, seinasti leikurinn hennar og hún skoraði;) hehe svo þegar pínu var eftir af leiknum skoruðu þær fáranlegt mark, einhversstaðar frá miðju og lengst yfir ingibjörgu8| og ég er að segja ykkur það að ég hef aldrei á ævi minni verið jafntapsár og eftir þennan leik, ekki vissi ég að það væri hægt að vera svona tapsár! en svona er lífið og við fórum í sund og grill og svona saman eftir leikinn og gleymdum þessu og vitum sjálfar hvað við spiluðum vel og við áttum leikinn:) og þeir sem mættu á leikinn, takk fyrir stuðninginn, hann var frábær, það var æði að sjá hvað margir mættu, þvílík stemning og gaman:) svona á þetta að vera fólk;)

en jæja verð að fara klára að hafa mig til fyrir keflavíkina, ég segi bara bless bless allir á ísó, og þið verðið að vera dugleg að kommenta hérna hjá mér og segja mér frá öllu, þið vitið nú hvað ég er forvitin;);)

-Hildur-


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 21:40:42 / hildur

pæjumótið

jæja þá er pæjumótið búið. og það var bara mjög skemmtilegt, ég kom fljúgandi á fimmtudagsmorgun frá rvk, eftir að við í mfl vorum búnar að spila leik á miðvikudeginum við þrótt rvk, og já hann tapaðist...

Eftir flugið var farið beint uppí rútuna.. og ég svaf alveg þvílíkt mikið, stelpurnar voru soldið hissa á mér hehe, skildu ekkert í því hvernig ég gat sofið svona mikið og afhverju hehe, en komum á siglufjörð um 7 leytið og þá var grillað pulsur og svona... á föstudeginum byrjaði þetta svo, og það var rigning, ekki skemmtilegt það, þar sem það var allt rennandi blautt, og við þessa rigningu, skemmdust vellirnir og það var bara drulluleðja á völlunum og pollar sem stoppuðu bara boltann... og stelpurnar urðu ansi blautar og drullugar, en stóðu sig samt bara ágætlega, þrátt fyrir það, B-liðið í 6 fl vann einhverja leiki og gerði einhver jafntefli og 2 töp minnir mig, en A-liðið tapaði öllu nema seinasta leiknum og það bætti allt að vinna einn leik, það bara bjargaði mótinu fyrir þær;)  B-liðið í 5, fl vann ks, og tapaði svo hinum og tapaði leiknum um sæti á lokamínútunni, voru ansi óheppnar, og A-liðið gerði jafntefli í seinasta leiknum en voru miklu betri... en svona er þetta, en þetta var bara ótrúlega skemmtilegt mót og gaman að fara með stelpurnar á það.  en alveg ótrúlega erfitt og maður verður ótrúlega þreyttur, enda svaf ég frá siglufirði til hólmavíkur!! og svo ´frá skötufirðinum til ísafjarðar.  en svo er seinasta vikan að þjálfa stelpurnar.. þetta er búið að vera alveg þvílíkt skemmtilegt að fá að þjálfa þær:D

en ég er líka hætt í vinnunni, seinasti dagurinn í dag, fór með köku hehe... þannig ég er núna bara ekki að gera neitt þangað til ég fer að þjálfa, kannski ég fari að pakka og svona, ef maður nennir.

En svo á sunnudaginn er hörkuleikur á ferð, það er hjá okkur í mfl kvenna, BÍ/Bolungarvík-Ægir!!   Það eiga allir að mæta á völlinn og styðja okkur, þar sem við ætlum okkur að vinna. Það verður skemmtileg stemning í kringum leikinn svo endilega látið sjá ykkur á vellinum!!;) seinasti heimaleikurinn í sumar, og seinasti heimaleikurinn minn með BÍ, allavega í bili.

En ætla að enda þetta með nokkrum myndum frá pæjumótinu;)

pjumt2006009.jpg

Melkorka, Árdís og Emma

pjumt2006007.jpg

Heba, Alberta,Særún og Sigurlaug

pjumt2006016.jpg

Hekla, Emma, Emma Jóna og Elín Lóa

pjumt2006025.jpg

og svo B-liðið:)

-Hildur-


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 00:22:00 / hildur

leikur og svo pæjumót:D

verslunarmannahelgin búin, og þetta var ömurlegasta verslunarmannahelgin mín!!! það er gjörsamlega ekkert að gerast hérna í bænum og engin í bænum!

en nenni ekkert að vera tala um það... ætlaði bara aðeins að setja inn færslu hér áður en ég legg af stað í langt ferðalag.  fer með morgunvél á miðvikudaginn til að spila leik kl 19!! já því hann má ekki vera spilaður kl 20, asnalegar reglur hjá ksí, því þá hefðum við getað farið með seinni vél, en þurfum í staðinn að vera slæpast í rvk þangað til.. en svona er þetta.. erum að fara spila á móti þrótt, og reynum okkar besta:) töpuðum 4-0 seinast fyrir þeim, reynum að gera betur:p

Förum svo með morgunvél heim á fimmtudag, þar sem er mæting í flug kl einhvað korter í 7!!! og hoppa svo beint uppí rútu á leið á pæjumótið á sigló! það verður stuð, hlakka ótrúlega mikið til að fara með stelpurnar og vera með þeim þarna heila helgi:) bara eins gott að það verði ekki rigning allan tíman, eins og var þarna núna um helgina, en annars á ég alveg 6-7 regnslár, þannig að það ætti að bjargast hehe

en nenni þessu ekki lengur, ég segi bara hafið það gott;) því það mun ég gera á sigló:)

-Hildur-


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 00:09:36 / hildur

2 ágúst:)

Fyrir 15 árum fæddust litlir sætir og yndislegir tvíburar:) þeir voru skírðir Sandra Sjöfn og Sigmar Þór.  já þessir tvíburar eru systkini mín:) sumir vita víst ekki að ég á fleiri systkini en þessi hér heima, en jú það á ég, ég er svo rík :) en allavega að í dag eða réttara í gær 2 ágúst urðu þau 15 ára, úff þau eru orðin svo stór, hehe ég man svo vel eftir ferðunum okkar í fljótavík, hehe fórum alltaf að veiða saman og gerðum hús úr dýnunum, það var ótrúlega spennandi hjá okkur:) en núna er aaaaaallt of langt síðan ég hitti þau. og það er ekki nógu gott, en það breytist vonandi þegar ég verð flutt suður.:)  En ég á enga mynd af þeim í augnablikinu í tölvunni þannig ég get ekki leyft ykkur að sjá mynd. en kem með mynd seinna, þannig þið fáið bara að sjá myndir af mér og svona úr kveðjupartýinu hjá Helgu og Guðbjörgu:)

og minni ykkur svo bara á að skoða bloggið líka fyrir neðan:)

Myndir004.jpg

ég vitleysingurinn og svo hún Eva, erum í miklu stuði þarna:)

Myndir006.jpg

Við sætum "systkinin" ,sigþór og ég:)

Myndir003.jpg

og ég einhvað verulega hissa, á því að það væri að taka mynd af mér...

-Hildur keflavíkurmær-


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 23:38:58 / hildur

2 vikur í flutning

þetta styttist og styttist... trúi varla að það sé að fara koma að þessu, að ég sé í alvöru að fara... en jú það eru einhvað um 2 vikur. Fer með mömmu suður 17 ágúst og ætla ég þá að læra að keyra í rvk, haha, ég hef aldrei keyrt í rvk, og búin að vera með bílpróf síðan í janúar, iss.  En fer svo flúgandi í leik hjá okkur hérna heima 19 ágúst, og spila á móti ægir, sem btw við ætlum að vinna, allir að fjölmenna á völlinn og styðja okkur:D svo fer ég bara daginn eftir aftur fyrir fullt og allt:S

En á föstudag og laugardag var sparisjóðsmótið hjá stelpunum mínum, og það var bara ágætt, gaman að sjá hvað þeim hefur farið fram,  unnu svo meira segja og fengu bikar og læti..:) voru samt bara einu stelpurnar í 6 fl.

EFtir mótið á laugardaginn fór ég með seinni vél suður, ætlaði aðeins að kíkja á þetta þarna í keflavík, og já mér leist bara vel á þetta allt saman.   Fór á æfingu í gær, var búin að kvíða soldið fyrir og var búin að segja við nokkra að ég ætlaði kannski bara að horfa á, en þeir sögðu nú að ég ætti að prófa. og ég gerði það.  Það var bara tekið vel á móti mér, fékk strax nick name hjá einni.  Hún kom að mér og sagði hæ hvað heitir þú,? uhh Hildur, þá kom hun já ég ætla að kalla þig messý og ég alveg uhh okei, og hun alveg já er það ekki í lagi hehe, og það sem eftir var æfingarinnar var ég kölluð þetta:) haha en reyndar kjúklingurinn af einni. þetta var semsagt mfl og 2 fl saman.  og var þetta bara gaman og gott að vera búin að kynnast þeim svona aðeins.  En eftir æfinguna komu þjálfararnir til mín, s.s þjálfari mfl og svo aðstoðarþjálfari mfl sem er þjálfari 2 fl spurðu mig hvort það væri einhvað sem héldi í mig þarna fyrir vestan hvort ég væri ekki bara til í og vildi koma strax til þeirra og spila og klára tiímabilið hjá þeim, því þau vildu svo fá mig strax... en ég ákvað að gera það ekki þar sem ég er að þjálfa litlu stelpurnar mína og er að fara með þær á pæjumótið og svo vildi ég nú klára mótið hérna heima með stelpunum;) hehe

en bara nokkrir dagar eftir að vinnu, og þá er ég bara hætt í samkaup-úrvalsbúðinni sem ég hef verið í mjööööög lengi, ætli það verði ekki skrýtið að vera hætt þar:$ ég verð nú að koma með köku eða einhvað seinasta daginn:D

en nóg í bili ætla að fara koma með í háttinn eða einhvað, vinna í fyrramálið

-Hildur keflavíkurmær-


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 23:16:58 / hildur

önnu rvk ferð búin:)

jájá hvað segiði gott?:) ég er farin að taka eftir því að ég skrifa alltaf eigilega bara eftir leiki hjá okkur hehe, enda er þá mest að segja frá einhverju;) var semsagt að koma heim frá rvk í gær, fórum suður á föstudaginn í þessari óspennandi rútu, þar sem við sátum í kremju með fæturnar og bakin alveg þráðbein... en fyrir utan það var ferðin bara fín, vorum ekkert svo lengi á leiðinni.  Gistum í ÍR húsinu, og svaf ég aftur hliðina á karítas;) og í þetta skiptið gnísti ég ekki tönnum, eða hún heyrði það allavega ekki hehe  en leikur á móti hk/víkin kl 16 á laugardeginum, vantaði einhvað 5 úr byrjunarliðinu en náðum að redda því svona svakalega vel;) leikurinn hófst mjög vel hjá okkur þar sem ég skoraði á 3 mín!! eftir stungu frá önnu, og við vorum ekkert smá hissar að við hefðum skorað, þvilíkt fyndið að sjá þetta... hk stelpurnar jöfnuðu svo á 40 mín og staðan 1-1 í hálfleik... en í seinni hálfleik fór þetta allt öðruvísi þar sem þær skoruðu 5 mörk og við ekki neitt!:(  en í þessum leik dæmdi besti dómari sem ég hef fengið! og þetta var kona, það hefur verið málið ég er viss um það! hehe

Fórum svo að borða í smáralind og sumar í tívolíið og aðrar að horfa á, þar á meðal ég sem var að deyja úr þreytu... ég átti víst svo metið í að fá krampa, það byrjaði í ísbúðinni þar sem ég öskraði að sársauka haha svo svona klst seinna þegar við fórum í bíó, og það var ekki þæginlegt að fá þennan svakalega krampa í bíó þegar maður getur ekki öskrað! haha en við fórum svo bara heim í hálfleik eins og ég sagði eða hléi hehe vorum svo þreyttar, eða ég, Anna María,lísa,ingibjörg og silja.

Sunnudagurinn, leikur á móti ír og hann tapaðist, ekkert meir um það, við vorum að deyja úr þreytu eða allavega ég, enda fékk ég 4 sinnum krampa eftir þennan leik, semsagt 6-7 sinnum í þessari ferð!!!! en ég fékk svo gult spjald í þessum leik, pfff ég skil ekkert í því:$

en á miðvikudaginn eru stelpurnar mínar í 6 fl að fara halda maraþon, ætla að spila í 8 klst, eru að safna fyrir pæjumótinu hehe, vona að þið hafið styrkt þær ef þær komu til ykkar;) svo er bara leikjafrí þangað til miðvikudaginn eftir verslunarmannahelgi... bara langt frí... og ég ákvað bara að skella mér í keflavíkina á laugardaginn eftir mótið í bolungarvík, ætla kannski að fara að horfa á æfingu og einhvað og leita mér að vinnu og svona hehe:)

en mig langar svo að hafa enhvað svona skemmtilegt áður en ég fer, til að kveðja alla,veit bara ekki hvort ég ætti að vera aðþví:Shvað finnst fólki? farið nú að kommenta;)

-Hildur-


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 23:22:27 / hildur

mánuður:)

aðeins mánuður þangað til ég fer:D mig hlakkar svo til...

en seinasta vika var bara sofið út svo leikjanámskeið og það er núna búið, síðasti dagurinn á föstudaginn, og ótrúlega gaman að sjá hvað krakkarnir voru ánægðir með mig og sigþór..:) hehe ein stelpan rosa hrifin af sigþóri og bróðirinn sko skotin í mér, hann er já 6 ára held ég, gaf mér bangsa seinasta daginn:) hehe

en helgin hjá mér var bara skemmtileg, kveðjupartý hjá Helgu og Guðbjörgu þar sem við skunduðum inní álftafjörð og þar var bara stuð á fólki, ótrúlega gaman, Helga fer út á morgun! og vona ég að hún eigi bara eftir að skemmta sér vel og hafa það ótrúlega gott þarna úti, við eigum sko eftir að sakna hennar í fótboltanum, í leikjunum sem eftir eru,..og auðvitað allt þetta ár sem hún verður;)

en spiluðum í dag við hauka og það var 3 marka framför síðan seinast, semsagt leikurinn endaði núna 7-0! ég skil þetta ekki,mér persónulega finnst við ekki spila það illa að við eigum að tapa svona stórt, mer finnst við alltaf svo óheppnar bara...:S en kannski finnst mér það bara ég veit ekki... suður svo á næstu helgi,tveir leikir og nokkrar byrjunarliðsmanneskjur verða ekki:S veit ekki alveg hvernig þetta fer, vonum bara það besta:)

Mér finnst sumarið búið að líða svo hratt, mér finnst ég nýbúin í prófum, en það er að vera búið!

næsta helgi er fótboltaferð, þar á eftir er sparisjóðsmót í bol-vík og langar mig svo að kíkja suður aðeins í keflavíkina eftir mótið og vera nokkra daga og kíkja kannski á æfingu.. svo versló eftir það, og hef ég ekki hugmynd hvað ég ætla að gera. helgin eftir það er svo pæjumótið með stelpunum mínum;) og svo bara fer ég á miðvikudeginum eða fimmtudeginum... ótrúlega fljótt að líða einhvað...

en nóg komið ég ætla að fara skella mér í háttinn þar sem úrvals búðin samkaup tekur við á morgun,..:S

-Hildur-


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:48:58 / hildur

lalala

borgarferðin búin... fór keyrandi með karítas og hemma og elínu á föstudaginn og ég sofnaði ekki neitt! hehe svo gaman hjá okkur á leiðinni.. gistum í íbúð saman eða ég,karítas,hemmi,valdís,helga,sigþór og tommi.. ég valdís, karítas og hemmi sváfum í hjónarúminu, það var ansi þröngt og hemmi vaknaði ekki ánægður á laugardeginum þegar ég og karítas vorum ansi þétt upp við hvor aðra eigilega í faðmlögum hahaha.... fórum til þorlákshafnar að keppa við mest dónalegasta lið sem ég hef á ævi minni séð og heyrt í! maður átti bara ekki til orð, og að kalla dómarann þroskaheftann og fá ekki spjald fyrir það...:o fórum svo að versla í kringlunni og valdís var stílistinn minn hehehe... ætluðum svo á players að horfa á leikinn en þar var stút full, þannig við enduðum á að þurfa að fara á pizza hut og horfðum á leikinn í gegn á burger king hehe og þjónustan á pizza hut er hræðileg, biðum í 40 mín eftir pizzunni, gosið þá orðið goslaust, þá vantaði lísu pizzu og hun átti að taka nokkrar mín að koma og það varð að svona 20 mín!! tívolíið var svo næst hjá okkur þar sem ég og valdís skelltum okkur í bollana og freek out ásamt hinum... og ingibjörg kjáni týndi símanum sínum í bollunum... ég vaknaði svo á sunnudaginn og þá var bara byrjað að gera grín af mér hvað ég gnísti mikið tönnum8| karítas gat ekki sofið fyrir því, sagði að í hvert skipti sem ég hreyfði mig þá byrjaði ég heheh    en karítas min hun mamma sagði að ég þyrfti ekki svona góm, það er búið að athuga þetta og ég skemmi ekki glerunginn þannig þetta er í góðu lagi;)

spiluðum svo við fjölni í gær og sá fyrri hálfleikur hjá okkur var frábær, við spiluðum okkar besta hálfleik sem við höfum spilað! og fjölnisstelpurnar bjuggust alls ekki við þessu... en svo var seinni hálfleikurinn annar hehe

úrslitaleikur HM var svo, og þvílíkur endir á ferlinum hjá Zidane... hvað ætli hinn hafi sagt við hann, það er stóra spurninginn...? hehe

en verslunarmannahelgin  fer bráðum að ganga í garð, og hvað ætlar fólk að gera á henni og hvert á að fara?

-Hildur-


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 23:10:06 / hildur

styttist og styttist

það styttist og styttist í flutning minn suður, og mér hlakkar svo til...:) þó ég eigi nú eftir að sakna allra hér..:) en ég verð bara dugleg að koma í heimsókn hingað;) veit samt ekki alveg hvenar ég fer, en skólinn byrjar 22 ágúst, á þriðjudegi, þannig að ég er að spá í að fara eftir pæjumótið sem er 10-13. Ég ætti þá kannski að fara finna mér vinnu og sækja um hehe, verð nú að eiga einhverja peninga þarna:D Hlakkar heldur ekkert smá til með að fara á pæjumótið með stelpurnar, þær eru svo mikið æði að þetta verður þvílíkt stuð hjá okkur;)

En við stelpurnar í mfl spiluðum á móti GRV á laugardaginn og ég veit ekki hvað það er sem vantar hjá okkur, en það er einhvað...:S leikurinn endaði 6-1 fyrir þeim og það var 2-0 í hálfleik.. við fengum samt færi en gátum ekki klárað þau... ég er komin með soldið leið á því að tapa alltaf, þó ég viti að þetta sé fyrsta sumarið okkar í mfl, þá er ég samt komin með leið, sama hvað aðrir segja, ég verð alltaf bara pirraðari og pirraðari eftir hvern leikinn... erum að fara suður á næstu helgi að keppa á móti ægir og við ætlum að vinna þær, annars veit eg ekki hvað...! svo á móti fjölni aftur og ætlum við að gera betur en seinast, það er ekki spurning.!´

Nú er nárinn að stríða mér og ég er búin að vera á íbúfeni til að lifa daginn af og til að geta sofið:S fór inní reykjanes eftir leikinn á ættarmót og það var bara þvílíkt gott að fara aðeins í burtu og slaka á, þar sem tvær seinustu vikur hafa verið crazy hjá mér hehe

En næstu tvær vikur verður frí hjá okkur til hádeigis:D ahh það verður lúxus:)   En ég held að það sé ekkert meir sem ég hef að segja....

-Hildur-

p.s Sigþór! litlir stafir fyrir þig elska;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 23:00:09 / hildur

leikur...

Leikur á laugardaginn kl 14, í bolungarvík á skeiðisvelli, BÍ/Bolungarvík - GRV, endilega sem flestir að láta sjá sig og styðja okkur, við þurfum á því að halda;)

-Hildur-


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 14:37:05 / hildur

hæhæ:)

Ég er ekki mjög dugleg við að skrifa hér á þessa síðu, ég nenni því aldrei:S en allavega þá byrjuðum ég og Sigþór með leikjanámskeiðið á seinasta mánudag, og vá ég hélt ekki að þetta myndi verða svona erfitt, maður er bara búinn á því þegar þetta er búið á daginn.  En kannski er það líka því þegar ég er búin með námskeiðið , þá fer ég beint að þjálfa stelpurnar, svo beint eftir það á æfingu hjá mér og er komin svona heim hálf átta-átta eða einhvað....

LEikurinn á þriðjudaginn, töpuðum við.  4-0, fyrsta markið kom eftir víti... fyrir vítið gekk okkur bara vel... svo skoruðu þær annað mark, 2 hjá þeim rangstæðar, svo bættu þær tveimur mörkum við eftir hálfleik... ég held að ég hafi aldrei spilað við jafn mikla dóna og þessar stelpur, greinilega dekraðar stelpur á ferð sem fá allt uppí hendurnar á sér.  ég fékk að vita það að ég er beygla, við erum aumingar og ég veit ekki hvað og hvað, þær báðum dómarann um að biðja þá sem voru í bílunum að slökkvá á ljósunum, kvörtuðu undan því að bílarnir voru að bipa...og voru mjööööög svo dónalegar við hvetjandann okkar sem stendur sig heldur betur vel að hvetja okkur.... en svona fór þessi leikur og ekki hægt að breyta því... næsti leikur á laugardaginn 1 júlí við Grindavík:) vona að okkur gangi betur í honum.

Á miðvikudaginn var frí á æfingu þannig að þegar eg var búin að þjálfa, fór ég með mömmu í samkaup, og fór heim og hún gaf mér að borða og ég fór svo beinustu leið uppí rúm kl 19 og steinsofnaði og svaf til 7 morguninn eftir... það er ekkert smá gott, og ég vaknaði bara eldhress um morguninn.:)

en ég held að þetta sé bara komið gott, ég ætla að fara leika mér á trampólíninu úti í sólinni, það er geðveikt gott veður:P

-Hildur-


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 00:08:49 / hildur

leikur....

LEIKUR Á MORGUN

 INNÍ BOLUNGARVÍK Á

 SKEIÐISVELLI.

BÍ/BOLUNGARVÍK-

þRÓTTUR, KL 20:00

ALLIR AÐ MÆTA Í

VÍKINA FÖGRU, ÉG

LOFA AÐ LYKTIN

VERÐUR EKKI!

ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER

ÓHÆTT AÐ KOMA.

HEHE


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 21:57:34 / hildur

fyrsta markið komið.....:)

Spiluðum við Hk/víking á þriðjudaginn, og má segja það að okkur hefur farið fram síðan í fyrsta leiknum okkar...:) en fengum á okkur 3 óheppnismörk í fyrri hálfleik, þar sem fyrsta var skorað með hendi:s en í síðari hálfleik komum við þvílíkt ákveðnar inná völlinn og við gjörsamlega áttum þennan hálfleik, enda náðum við að skora, ég skoraði eftir sendingu frá Helgu;), en áður en markið kom átti Elin skot í slánna og við fengum fullt af færum en boltinn fór ekki inn heheh, svo skoruðu þær mark á seinustu mínútu eftir misskilning hjá okkur....þannig endaði 4-1 en við mjög svo ánægðar með þennan seinni hálfleik allavega... næst er það bara sigurinn:D hehe

En nú er það komið á hreint að ég er að fara héðan í burtu í vetur:) Fékk inní skólann í Keflavík og ætla að fara þangað. Ég tók þá ákvörðun um að bara að prófa einhvað nýtt, mér finnst að maður þurfi þess bara einhvern tímann í lífinu og þegar maður hefur áhuga á því á maður bara að skella sér á það, ekki satt?;)  En ætla semsagt að búa hjá Hauki og Eyrúnu og fara í skólann og æfa með Keflavík, og hva ætli ég fari ekki að vinna í Samkaup:P haha

Ég er líka komin með nýja vinnu í sumar:) pæliði í því, eftir að hafa verið í Samkaup síðan ég fermdist haha, en ég og Sigþór tókum að okkur leikjanámskeið, sem hefst á mánudaginn, og okkur hlakkar bara til að byrja... alltaf gaman að prófa að vinna við einhvað nýtt... svo endilega ef þið þekkið krakka fædda 1996-2000 þá endilega segið þeim frá þessu leikjanámskeiði:)

En meira var það ekki sem ég nenni að skrifa.... næsti leikur á þriðjudaginn við Þrótt, og ég ætlaði í sund í dag til að losna við strengina og allt það, er að deyja úr þreytu og stirðleika eftir leikinn, en nei þegar ég mætti var lokað!! þó það var auglýst opið 07-21¨! ég fór heim í fýlu og fór í ljós og heitt bað í staðinn... og er ekki eins stíf og svona eftir það hehehe sem er gott:)

en kveð í bili... með hvaða liði haldiði í HM?
-Hildur-


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 23:33:10 / hildur

rigning

úff það er ekkert smá mikil rigning hér, fór út í hamraborg áðan og hugsaði, tja þetta er svo stutt, og smá rigning ég nenni alveg út, en þegar út var komið var þetta ekki smá rigning, heldur þetta var helli demba og riiiiisa stórir dropar, heheh þannig að ég var aðeins blaut.

En móðurhlutverkið með systkini mín gekk bara ansi vel skal ég segja ykkur, ég og systir mín bökuðum köku, og tókum til uppi og ryksuguðum, og ég setti í þvottavél og vaskaði upp og læti sko... En svo á föstudaginn þurfti Þórir endilega að koma og eyðileggja stoltið yfir þessu fyrir mér, hann kom og sagði að hann væri einn heima og væri að fara að elda og ég alveg hey ég er líka ein heima og meira segja með systkini mín og taldi upp það sem ég var búin að gera, en þá kom hann og bætti um betur, því hann skúraði og þreif allt húsið og eldaði en ég fór bara í mat til ömmu:S og honum fannst þetta merkilegt því hann var strákur heheh, en tja mér fannst ég samt geðveikt dugleg:P

Fórum líka í sund á suðureyri á fimmtudaginn, ég, Rakel og Ingibjörg,´því þegar við vöknuðum var sól hérna, og við ætluðum sko að fara í úti sundlaug og worka tanið og fá smá bikiní far, en nei þegar á suðureyri var komið, var skýjað og svo byrjaði að rigna!! þannig að við fengum ekkert bikiní far:(

En mfl kk var að spila í dag við hvíta riddarann og snéru blaðinu aldeilis við, þar sem þeir töpuðu fyrir þeim seinast í bikarleik 4-1 en unnu í dag 4-1:) og þetta eina mark hjá þeim kom í uppbótartíma og var alveg óþarfi heheh en vá með þessu áframhaldi vona ég og held að þeir bara komist upp um deild;) ég hef trú á ykkur strákar:)

Ég fór líka á æfingu í dag eftir þetta 2 vikna hlé, og það var bara mjög fínt, leikur á þriðjudaginn, þannig að ég ákvað að mæta núna þar sem ég ætla að spila með, kannski ekki gott að mæta bara í leik og ekki búin að hreyfa sig í 2 vikur:) hehe

og eitt að lokum áður en ég skelli mér í háttinn, þá átti hann bróðir minn afmæli í gær, orðin 12 ára drengurinn og svo á hann Haukur frændi í keflavíkinni afmæli í dag.. til hamingju með það elskurnar:*

OG annað að lokum hehe, þá er LEIKUR Á ÞRIÐJUDAGINN KL 20 HJÁ OKKUR BÍ/BOLUNUGARVÍK-HK/VÍKINGUR, ALLIR AÐ MÆTA!!

-Hildur-


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3